 Blóðþrýstingurinn lækkar þegar stunduð er líkamsrækt reglubundið og þetta á einnig við um þá sem eru með of háan blóðþrýsting fyrir. Hættan á hjartasjúkdómum, nýrnabilun og heilablóðfalli eykst um helming ef blóðþrýstingurinn fer yfir 160/95 mm Hg. Reglubundin hreyfing, í líkingu við hlaup, hjólreiðar og sund, lækkar blóðþrýstinginn um 9-12 mm Hg hjá þeim sem þjást af of háum blóðþrýstingi. Ef blóðþrýstingurinn er eðlilegur fyrir er ávinningurinn lækkun sem nemur u.þ.b. 4 mm Hg.
Grein fenginn úr Í formi
|