 1. janúar 2006 tóku Bandaríkjamenn í gildi reglur sem skylda alla matvælaframleiðendur til að merkja inn á alla pakkaða matvöru hvort viðkomandi vara innihaldi transfitusýrur og í hvaða magni.
Árið 2003 hertu Danir mjög reglur um hvað matvæli mættu innihalda mikið af transfitusýrum. Amerísku hjartaverndarsamtökin ráðleggja fólki að varast það að transfitusýrur fari yfir 1% af orkuinntöku. New York borg bannaði nýlega með öllu notkun þessarar skaðlegu fitu.
Enn í dag eru ekki neinar reglur á Íslandi um þessi mál, hvorki varðandi merkingar né magn og illmögulegt fyrir neytendur að fylgjast með hvort vara innihaldi þessar slæmu fitusýrur.
Heimild: Heilsubankinn.is
|