Skip to main content

einkaþjálfun

Einkaþjálfun

Einkaþjálfun er viðurkennd sem fljótlegasta leiðin til að komast í betra form. Kraftmikið samspil aðhalds, skipulags á æfingunum, mataræðis og kennslu í tækjaþjálfun er það sem flest fólk sækir í. 

  • Þjálfarinn metur líkamlega stöðu og sníður prógram samkvæmt líkamsgetu.
  • Þjálfarinn fylgir þér á hverri æfingu og kennir þér að gera æfingarnar rétt.
  • Þú færð vandaðar útskýringar á framkvæmd æfinga.
  • Þjálfarinn fer reglulega yfir mataræðið, ráðleggur og bendir þér á þægilega valkosti.
  • Markmið eru sett og uppfærð eftir þörfum til að þú náir þínu draumaformi.
  • Ástandmælingar eru framkvæmdar reglulega.
  • Í lok hvers tíma eru teygjur, heitur pottur eða gufubað ef fólk vill.
  • Þú færð aðhaldið sem fæst ekki með því að æfa ein(n).
  • Nokkrir geta æft saman í tímanum.

Upplýsingar um verð thjalfun@thjalfun.is

Matarprógram

MATARÆÐI

Þú færð mataráætlun, sniðna að þínum þörfum og markmiðum. Við gætum þess að öll næring sé bragðgóð og skili einnig frábærum árangri. Næringaplanið er reglulega endurskoðað til að halda þér við efnið.

Æfingakerfi

Æfingakerfi

Þjálfarinn setur saman heilstæða æfingaáætlun miðaða við þau markmið og getu sem þú hefur. Æfingarnar eru fjölbreyttar, skemmtilegar og hvetjandi. Æfingakerfið er endurskoðað reglulega til að hámarks árangri sé náð.

MÆLINGAR

Líkamsmælingar eru góð leið til að mæla árangur og sýna hversu vel gengur að ná settu markmiði. Við notum mjög nákvæma mælingu og þú getur komið í venjulegum fatnaði í hana. Reynslan sýnir okkur að þeir sem fara reglulega í mælingu ná meiri árangri.

ÁRANGURSSÖGUR

Ótrúlega góður árangur !!!
Uppsetning Kristjáns á þjálfuninni er fjölbreytt og skemmtileg. Á stuttum tíma hef ég náð ótrúlega góðum árangri og þakka ég því góðri þjálfun Kristjáns, trúnni sem hann hefur á manni og hvað hann fylgir manni vel eftir.

Sindri GuðmundssonÓtrúlega góður árangur

Kristján hjálpar manni að ná sínu markmiði.
Kristján kom með sérhæfða þjálfun fyrir mig og leiðbeindi mér í gegnum allt ferlið, hann tekur tillits til getu og þol manns. Hann hjálpar manni að ná sínu markmiði og er duglegur að hvetja mann áfram.

Helga GuðnýKristján hjálpar manni að ná sínu markmiði

15 kg farin.
Á 5 mánuðum hef ég misst 15 kg og farið að sjá vel á mér, bæði í ummáli og vöðvabyggingu.
Mín reynsla af Kristjáni er mjög góð, get alltaf haft samband við hann og mig hlakkar alltaf til að fara í mælingu hjá honum og ræða málin.

Stefán Sindri15 kg farin

11 kg farin af fitu, rúm 3 kg af vöðvum komin. Ég mæli því hiklaust með farþjálfun hjá Kristjáni Jónssyni, hann er rétti maðurinn til að hjálpa þér til breyta um lífstíl. Fyrir 5 mánuðum síðan fór ég til Kristjáns, þar settum við okkur markmið og út frá því setti hann upp æfingaráætlun, matarplan o.fl. Í dag eru 11 kg farin af fitu, rúm 3 kg af vöðvum komin í staðinn.

Steingrímur Jónsson11 kg farin af fitu, rúm 3 kg af vöðvum komin

Fjárfestu í heilsunni, hún er það dýrmætasta sem þú átt!

Þjálfarinn

Kristján Jónsson
28 ára reynsla — engar öfgar, bara árangur.

Þegar kemur að heilsunni þinni skiptir reynsla öllu máli. Kristján Jónsson er einn reyndasti einkaþjálfari landsins og hefur starfað við fjar- og einkaþjálfun í 28 ár. Hann var einn af fyrstu Íslendingunum til að ljúka einkaþjálfararéttindum frá hinum virta skóla ISSA (International Sports Sciences Association) árið 1998 og hefur síðustu tvo áratugi starfað í Sporthúsinu — með framúrskarandi árangri.

Af hverju að velja Kristján?
Kristján „kallar ekki allt ömmu sína“. Hann byggir þjálfun sína ekki á dægurflugum eða tískubólum, heldur áratuga reynslu af því að tálga og styrkja þjóðina. Ferill hans talar sínu máli:

• 28 ára starfsreynsla sem einkaþjálfari og heilsuráðgjafi
• Tvöfaldur Íslandsmeistari í vaxtarrækt
• Íslandsmeistari í kraftlyftingum

Aðferðafræðin: Heilbrigður lífsstíll — ekki öfgar.
Markmið Kristjáns er að þjálfa líkamann til að vera sterkan, heilbrigðan og liðugan. Hann leggur áherslu á að koma upplýsingum á mannamáli og byggja upp varanlegar venjur. Öfgar gera engum gagn til lengdar; lykillinn að árangri er að vinna rétt, sýna dugnað og gera líkamsrækt að varanlegum lífsstíl.

Hvort sem markmiðið er að grennast, stælast eða einfaldlega öðlast betri heilsu, þá er Kristján þjálfarinn sem fylgir þér alla leið — með festu og fagmennsku.

Fjárfestu í heilsunni. Hún er það dýrmætasta sem þú átt.