Mikilvægi markmiða
Aðalmálið með að setja sér markmið er að þau séu raunhæf, að þú getir náð þeim og að þau séu mælanleg, t.d. að lækka hjartsláttinn, minnka fituprósentuna, léttast um viss mörg kíló o.s.frv.
Við skiptum markmiðunum okkar í þrjá flokka:
Skammtímamarkmið, en það eru frekar auðveld markmið sem koma okkur á sporið í átt að lokatakmarkinu. Skammtímamarkmiðin veita þér mikla gleði þegar þeim er náð og halda baráttuandanum við á leið þinni að stóra sigrinum. Reyndu að vera nokkuð nákvæm(ur) þegar þú setur þér skammtímamarkmiðin, hafðu þau það erfið að þú þarft að hafa fyrir þeim en ekki þannig að þú gefist upp á þeim. Mundu að þú þarft að sýna ákveðni og viljastyrk, en ef þú gerir það færðu það þúsundfalt til baka. Skammtímamarkmið ættu að ná yfir u.þ.b. 4 – 6 vikur og geta t.d. verið að mæta 1 – 2 sinnum í ræktina, borða hollt alla vega einu sinni á dag eða neita sér um einhverja freistingu.

Miðtímamarkmiðin þín eru framlenging á skammtímamarkmiðunum og eiga að ná yfir 4 – 12 mánuði. Þar herðirðu aðeins á skemmri markmiðum þínum og getur farið enn lengra með þau. Á miðtímanum ertu farinn að sjá virkileg áhrif frá æfingum og breyttu mataræðinu, þú finnur mun á fötum, hvíldarpúlsinn er lægri, þú ert léttari og fituprósenta þín hefur lækkað. Þú finnur jafnvel fyrir skapferlisbreytingum eins og aukinni einbeitingu og þolinmæði og meira sjálfstrausti. Miðtímamarkmiðin þurfa að vera meira krefjandi en skammtímamarkmiðin en þó aldrei svo að þér finnist allt vera kvöð á þér, fyrst og fremst á þetta að vera gaman og þú átt að hlakka til næstu æfingar en ekki kvíða fyrir henni.
Langtímamarkmiðin eru í raun fínpússuð miðtímamarkmið. Þau eiga að ná yfir lágmark eitt ár. Langtímamarkmiðin eiga að vera þau að þú sért sáttur við eigin líkama og heilsu og búir í líkama sem veitir þér sjálfstraust og gleði. Hollt mataræði og regluleg hreyfing eiga að vera orðin hluti af þínu nýja lífi og þú hefur nú þá þekkingu á þínum eigin líkama að þú veist hversu miklar æfingar og hversu strangt mataræði hann þarf til að virka eins og honum er ætlað.
Þó að allt þetta hljómi vel og virki auðvelt er langt í frá að svo sé. Það munu koma upp hundruð augnablika þar sem þér mun finnast þetta mjög erfitt og það munu koma upp vandamál sem þér finnast jafnvel óyfirstíganleg. Þú munt freistast til að sleppa æfingu og þú munt freistast til að fá þér nammi þegar þú átt að fá þér epli. Það mikilvægasta er að þú gerir þér grein fyrir þessu öllu frá upphafi og ætlir ekki að fara af stað og aldrei falla af baki.
Málið er ofur einfalt, Það falla nær allir einhverntímann, fyrstu vikuna, fyrsta daginn eða jafnvel fyrsta klukkutímann. Það er enginn fullkominn. Að þú sért að gera betur í dag en í gær og betur þessa vikuna en þá seinustu er það sem skiptir máli, aldrei gleyma því.
Það eru nokkur atriði sem er nauðsynlegt að hafa í huga áður en þú sest niður og byrjar að setja þér markmið. Þetta eru atriði sem við þurfum flest að glíma við og geta hjálpað okkur að vera raunsærri og nákvæmari varðandi markmið okkar.

Hvað mun hvetja mig til að stunda líkamsrækt?

Hvatning er ekki bara spurning um viljastyrk, því viljastyrkur er skammtímaáætlun. (,,ég ætla ekki að reykja þessa sígarettu”…. ,,Ég ætla ekki að borða þetta súkkulaði”… ,,Ég ætla í göngutúr núna”) Hvatning er langtímaaðferð til að öðlast eitthvað sem hugurinn girnist. Viljastyrknum getum við kveikt og slökkt á eins og ljósrofa en raunveruleg og sönn hvatning er eilífur logi sem aldrei deyr.
Áður en þú byrjar á ferð þinni að heilsusamlegra líferni þá verður þú fyrst að ákveða hver þín persónulega hvatning er.
Það þarf kjark til að líta í eigin barm og spyrja sjálfa sig hver getur verið sú sterka hvatning sem hjálpað þér að gera erfiðar breytingar til að öðlast betra líf. Þú munt sennilega upplifa einhverja vanlíðan, því það eru jú oftast veikleikar okkar sem við horfumst í augu við en þú verður að taka á þessu með jákvæðu hugarfari. Þessi innri hvatning mun koma djúpt innan frá undirmeðvitund þinni og styðja þig í gegnum erfiðu stundirnar.

Ekki nota yfirborðskenndar ástæður.

Eins og ,,ég vil léttast” eða ,,ég vil vera unglegri”. Með þvi að leita dýpra áttarðu þig e.t.v á að svarið er frekar að þú vilt ekki fá hjartasjúkdóm um aldur fram, ekki sykursýki, of háan blóðþrysting eða æðasjúkdóma. Kannski er þetta spurning um sjálfstraust eða vanlíðan í þínum eigin líkama.
Hver svo sem ástæðan er verður hún að vekja svo sterkar tilfinningar hjá þér að allt daglegt amstur og óvæntar uppákomur koma ekki í veg fyrir áætlanir þínar um bætta heilsu.

Til að ná toppárangri.

Er nauðsynlegt að setja sér raunhæf markmið, bæði til langs tíma og síðan styttri markmiðin sem koma þér að lokum að langtímamarkmiði þínu. Þessi markmið skaltu skrifa niður á markmiðaformið hérna á eftir en passaðu þig á því að vera með markmið sem standast og er mögulegt að ná.
Ekki ætla þér að missa 20 kíló á tveimur mánuðum eða hætta að borða nammi yfir höfuð. Þetta eru óraunhæf markmið sem munu að öllum líkindum enda með að þú verður mjög vonsvikinn og enn verr staddur líkamlega og andlega en áður en þú hófst átakið.

Þú verður að horfast í augu við sannleikann.

Vænlegt er taka á þeim utanaðkomandi áhrifum sem geta komið í veg fyrir að þú getir bætt heilsu þína. Þau geta verið börnin/eiginmaðurinn(konan)eða vinirnir sem koma í veg fyrir að þú komist á æfingu, borða nammi eða sætabrauð fyrir framan þig og láta þig finna fyrir sektarkennd þegar þú getur ekki varið tíma með þeim o.s.frv.
Já, þú verður að vera vera örlítið sjálfselsk(ur), en til lengri tíma litið munu allir hagnast á þessari sjálfselsku því það er engum til gagns ef heilsu þinni hrakar stöðugt og lífsgæði þín minnka? Að láta eftir sér einstaka sinnum að borða fituríkan mat eða taka 20 mínútna æfingu í stað 30 mínútna er í góðu lagi, en þú verður að setja þér reglur og forgangsröð sem skilar þér í átt að markmiði þínu með sem minnstum skakkaföllum.
Í raun mælum við með því að fólk taki sér einstaka ,,nammidag” á milli því lífið er til þess að njóta þess og við vorum ekki sett á þessa jörð til að lifa eingöngu á rískökum og gulrótum.
Ert þú ert virkilega tilbúin? Já, værirðu nokkuð að lesa þetta annars.

Rétti tíminn taka skrefið í átt að heilbrigðari líferni er NÚNA. Að bregðast strax við og gera eitthvað í þínum málum er það sem þú átt að gera, frestaðu því ekki að láta þér líða betur en þér hefur nokkurn tíma líðið áður. Það gerist ekkert að sjálfum sér, gríptu tækifærið þegar þú finnur að þú ert virkilega tilbúin því það gæti verið að á morgun finnist þér það of seint og byrjir að bíða eftir næsta ,,fullkomna augnablikinu” til að gera eitthvað. Byrjaðu núna!